06janúar
Herkaenska Jeppans med lid LA Lakers skiladi ovaentum sigri i 2.moti NBA Live motaradarinnar.
LA Lakers og New York urdu jofn ad stigum med 8 stig hvort en Orlando kom naest med 6. Miami rad lestina med 2 stig ad venju.
12október
New York Knicks undir handleiðslu Sævars Ólafssonar fagnaði sigri í fyrsta NBA Live móti vetrarins sem fram fór á "Vistinni" í gær. Sigurinn var nokkuð öruggur en Sævar vann 5 af 6 leikjum sínum í mótinu.
Orlando fór illa að ráði sínu í tvígang gegn LA Lakers á meðan Lakers undir stjórn "Jeppans" sýndu góð tilþrif í báðum leikjunum gegn Orlandol. Liðinu gekk upp og ofan í öðrum leikjum mótsins. Miami Heat vann Lakers í bæði skiptin en laut í lægri haldi fyrir Orlando og New York.
Lokastaðan í fyrsta móti vetrarins er því þessi.
1. New York
2. Orlando Magic
3. Miami Heat
4. LA Lakers
Miami Heat er í þriðja sæti á innbyrðisviðureignum.
Nánari útlistun á mótinu og viðtöl við þjálfara og leikmenn liðanna koma inn á næstu dögum. Úrslit leikjanna eru komin inn hér til hliðar í "Úrslit leikja". Einnig er komin staðan í mótinu.
11október
1.leikhluti
0-5 Frábær byrjun New York, Richardson með þrist
12-15 eftir 1.leikhluta
2.leikhluti
12-17 er staðan.....New York mun sterkara.
12-20 Richardson með rosalegan þrist
14-22 Marbury með góða körfu af lyklinum
17-22 Kobe Bryant með frábæran þrist
19-24 Lamar Odom með troðslu og Channing Frye hinu megin
21-26 í hálfleik!
3.leikhluti
Byrjunin lofar ekki góðu fyrir Lakers! 23-30
Lamar Odom með tvo þrista og Devan George einn. 31-32
New York með "sirkuskörfu", 34-40
4.leikhluti
Sævar með undirtökin og er að klára þetta, 38-50!
Óþolinmæði í leik Freysa og þristarnir teknir í gríð og erg.
11október
Magic gefur eftir uppkastið. Walker fer á línuna strax, klúðrar fyrsta og öðru
Wade er mættur á svæðið klárar skemmtilega 4-1 Heat
Shaq - troðsla! Sjálfstraust Magic er fokið útí vindinn... Francis tekur þó smá session 8-5
Dooling klúðrar buzzer skoti. Staðan 10-9 Miami
2.leikhluti.
Shaq blokkar, Wade treður - gott kombó! 15 - 9
Magic eiga í vandræðum. Posey klikkar á einu víti staðan er 11-16 Heat!+
Howard er mættur og treður yfir Shaq eftir að hafa verið blokkaður af Shaq. Cato hægfara í vörninni, Wade treður. 13 - 18.
34 sek eftir. Wade á línunni. 1/2. Orlando sækir, Cato klárar með troðslu og sækir villu á Shaq en klikkar vítinu. Wade klikkar þrist þegar 15 eru eftir. Francis klárar og treður. Turnover og endir leikhluta 2.
Hálfleikstölur 17 - 19 Heat. Wade 12 stig - Howard 6
Gunnar tekur session meðan Gissur gefur eftir. Tölvuvandræði. 29 - 29 eftir 3.leikhluta.
4.leikhluti! CRUNCH TIME!
Wade turnover. Francis gerir slíkt hið sama Wade klárar með DUNK! 35 - 33
Gott brot hjá Gunnari, Shaq stígur upp - Gissur sypur hveljur enda klikkar Shaq báðum en það er sóknarfrákast Heat og 2 stig. 37 - 39 Giss á tvö víti
11október
Orlando - LA Lakers
Orlando gefur eftir uppkastið - Lakersmenn hefja leikinn.
Kobe gefur tóninn með einum djúpum þrist en Howard svarar með troðslu þar sem varnarleikur var enginn. Jafnt er með liðinum, Kwame Brown er aktívur undir körfunni meðan varnarleikur Orlando virðist í fínu ástandi með þá Kelvin Cato og Dwight Howard. Gunnar er búinn að úthúða dómara leiksins strax, en slapp við tæknivillu. Stórt blokk frá Howard gegn Bryant þegar 20 sek voru eftir. Brotið gegn Steve Francis á lyklinum, sekúnda eftir. Staðan eftir fyrsta leikhluta 13 - 8 og Bryant og Francis stigahæstir með 5 stig hvor...
2.leikhluti
Hraði í leiknum. Sniðskot hjá Odom, 2 stig. Staðan 15 - 12 Orlando í vil.
Bryant er heitur 2 stig, Gunnar bölvar misstökum í varnarleik. Nelson er aktívur. 22 - 16
26 - 16 og Bryant setur niður einn þrist! Odom klára einnig góðan drive að lykli 26 - 21 og endir annans leikhluta.
3 leikhluti
Menn eru ískaldir á vítalínunni....Francis klúðrar báðum. Odom klárar troðslu með stæl. 26 - 23
Orlando með boltann... Cato treður með ákafa! Blokk hjá Cato, Kwame Brown niðurlægður, Bryant klárar síðan eftir innkastið. 28 - 25 Magic. Síminn hjá Frey hringir, áhorfendur ekki sáttur.
Steve Francis treður stórri troðslu eftir barning í teignum. Freyr svarar á hinum endanum eftir að hafa hirt sóknarfrákast. 33 - 27.
Cato á punktinum... öryggið uppmálað. Bryant setur niður BÖZZER!! Dómarinn dæmir það ranglega ekki gilt!! 36 - 30
4.leikhluti
Turnover hjá Magic og Odom æðir upp völlinn. 36-32+
Spennan er mikil. 40 - 36 fyrir Magic. Gunnar gerist drastískur og gerir breytingar. Stillir varnarleikinn á Box and 1
Freyr klúðrar tveimur vítum á ögurstundu. Gunnar klárar hinum megin. 44 - 39. Blokk hjá Cato, þetta er að klárast. 46 - 39
ÞRISTUR!! Bryant góðir hálsar! Þetta er jafn, Freyr klárar tvist. 47 - 46. Dooling hittir einu víti!
47 - 47. Francis bregst bogalistin á línunni hittir aðeins öðru. 48 - 47. Kobe er með boltann, það er brot, hann fer á línuna og hittir...það er jafnt!! Síðasta vítið! hann klárar það. 49-48. Cato klúðrar einu!+
Lakers klára þetta! Sigurinn er þeirra. Cato klúðrar báðum!
11október
Leikurinn er hafinn.
1.leikhluti
00:00 Miami vinnur boltann í uppkasti
1:00 Staðan orðin 4-4
2:00 Staðan 9-8 fyrir Miami. Dwayne Wade með 7 af 9 stigum liðsins.
3:00 Miami er yfir eftir 1.leikhluta, 13-12.
Dwayne Wade hefur skorað 9 af 13 stigum Miami.
2.leikhluti
3:30 Miami yfir 15-12
5:20 Richardson með þrist, 19-22
6:00 New York búið að herða takið á leiknum. 23-26 í hálfleik
3.leikhluti
6:40 Dwayne Wade er kominn með fjórar villur og er kominn í villuvandræði!
7:00 New York er 10 stigum yfir, 23-33
8:00 New York skoraði 10-2 og er komið í 27-37
4.leikhluti
10:00 Miami búið að minnka muninn í 8 stig, 33-41
10:42 Miami hyggst brjóta viljandi og láta leikmenn New York á vítalínuna
11:20 New York búið að klára leikinn, staðan orðin 37-49
10október
Ákveðið hefur verið í samráði við Símann að bjóða upp á beina lýsingu frá fyrsta NBA Live móti vetrarins. Hægt verður að fylgjast með en á mínútu fresti koma tíðindi úr leikjunum og staðan í leikjunum.
Þið einfaldlega refreshið síðuna og allt á að vera í himnalagi.
08október
Fyrsta mótinu hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ljóst er að mótið fer ekki fram fyrr en eftir tvær vikur í fyrsta lagi. Liðin verða að taka frá dag og það verður að standast....annars gengur þetta aldrei upp.
08október
1.umferð
Miami Heat - New York Knicks
Orlando Magic - LA Lakers
2.umferð
Miami Heat - Orlando Magic
New York - LA Lakers
3.umferð
LA Lakers - Miami Heat
New York Knicks - Orlando Magic
4.umferð
New York Knicks - Miami Heat
LA Lakers - Orlando Magic
5.umferð
Orlando Magic - Miami Heat
LA Lakers - New York
6.umferð
Miami Heat - LA Lakers
Orlando Magic - New York Knicks
Nokkur óvissa ríkir um framkvæmd mótsins í kvöld en miklar líkur eru taldar á því að lið LA Lakers hyggist ekki mæta til leiks. Forráðarmenn liðsins hafa ekki svarað fjölmörgum símtölum í dag og eru þjálfarar hinna liðanna í mótinu, afar ósáttir við þessi vinnubrögð LA Lakers, sem þeir segja að séu afar slæleg.
08október
Þá er komið að því sem fólk hefur beðið eftir en það er spá þjálfara og forráðarmanna liðanna í NBA Live mótaröðinni. Þjálfarar máttu auðvitað ekki setja eigin lið í sæti þannig að þeir röðuðu liðunum í þrjú sæti. Spáin lítur svona út:
1. New York Knicks 9 stig
2. Orlando Magic 7 stig
3. LA Lakers 4 stig
4. Miami Heat 4 stig
Það er því ljóst að þjálfarar liðanna spá New York sigri í mótinu í vetur. Sævar hlaut fullt hús stig og hann ætti samkvæmt spánni að eiga sigurinn næsta vísan.
Einnig var könnun hér til vinstri á síðunni og úrslitin úr könnuninni urðu eftirfarandi.
1. New York Knicks 44%
2. LA Lakers 40%
3. Orlando Magic 12%
4. Miami Heat 4%
Enn og aftur er New York spáð sigri í vetur og ljóst er að pressan er mikil á lærisveinum Sævars Ólafssonar. Hann er nýkominn frá Danmörku þar sem hann var með sína menn í æfingabúðum fyrir komandi mót.